Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
banner
   fim 05. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nefnir leikmanninn sem hann myndi stela frá nágrönnunum
Kaka.
Kaka.
Mynd: EPA
Brasilíumaðurinn Kaka er goðsögn hjá AC Milan en hann hefur núna nefnt þann leikmann sem hann myndi stela frá nágrönnunum í Inter.

Það er alltaf spennandi þegar þessi nágrannalið mætast en næsti leikur liðanna er á sunnudaginn.

Kaka var að því tilefni í viðtali við Gazzetta dello Sport þar sem hann ræddi um leikinn. Var hann meðal annars spurður í viðtalinu hvern hann myndi taka úr Inter yfir í AC Milan.

„Lautaro Martinez, en þar sem hann er meiddur þá tek ég Marcus Thuram," sagði Kaka sem finnst greinilega vanta sterkari sóknarmann í AC Milan.

Kaka, sem var einn besti leikmaður heims er hann spilaði með Milan, hefur þá mikla trú á Luka Modric fyrir leikinn á sunnudag. „Hann mun gera gæfumuninn með reynslu sinni og hæfileikum."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner