Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
banner
   fim 05. mars 2026 14:01
Elvar Geir Magnússon
Nýju mennirnir skoruðu mörk Þórs á Spáni
Mynd: Þór
Nýliðar Þórs á Akureyri eru í æfingaferð á Spáni þar sem þeir búa sig undir komandi tímabil í Bestu deildinni.

Þeir mættu norska B-deildarliðinu Moss í æfingaleik en það rigndi og blés meðan á leik stóð.

Þór vann 3-2 sigur en mörkin þrjú komu öll frá leikmönnum sem Þórsarar sóttu eftir að þeir unnu Lengjudeildina í fyrra.

Atli Sigurjónsson sem kom frá KR, Elvar Baldvinsson sem kom frá Völsungi og ganverski kantmaðurinn Isaac Antanga sem kom á dögunum frá Kalmar í Svíþjóð skoruðu mörk Þórs.

Ole Martin Nesselquist, fyrrum aðstoðarþjálfari KR, stýrir liði Moss.

Á laugardaginn leikur Moss annan æfingaleik á Spáni, þá gegn Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.
Athugasemdir
banner
banner