Argentínumaðurinn Martin Demichelis hefur tekið við sem stjóri Mallorca í spænsku deildinni.
Demichelis tekur við liðinu þegar liðið situr í 18. sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Hann tekur við af Jagoba Arrasate.
Demichelis tekur við liðinu þegar liðið situr í 18. sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Hann tekur við af Jagoba Arrasate.
Demichelis er 45 ára gamall en hann lék á sínum tíma með Bayern og Man City. Hann vann fjölda tilta með Bayern og einn Englandsmeistaratitil með Man City.
Hann lék 51 landsleik fyrir hönd Argentínu og var í liðinu sem tapaði í úrslitaleik HM 2014 gegn Þýskalandi.
Athugasemdir

