Newcastle 2 - 1 Manchester Utd
1-0 Anthony Gordon ('45 , víti)
1-1 Casemiro ('45 )
2-1 William Osula ('90 )
Rautt spjald: Jacob Ramsey, Newcastle ('45)
1-0 Anthony Gordon ('45 , víti)
1-1 Casemiro ('45 )
2-1 William Osula ('90 )
Rautt spjald: Jacob Ramsey, Newcastle ('45)
Fyrsta tap Manchester United undir stjórn Michael Carrick varð niðurstaðan á St James' Park í kvöld. United heimsótti Newcastle og var manni fleiri allan seinni hálfleikinn en tókst ekki að nýta sér það.
Jacob Ramsey, miðjumaður Newcastle, var sendur í sturtu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann fékk sitt annað gula spjald fyrir að dýfa sér.
Í uppbótartímanum komu tvö mörk; Anthony Gordon kom Newcastle yfir úr vítaspyrnu en Casemiro jafnaði með skalla eftir aukaspyrnu rétt áður en hálfleikurinn kláraðist.
Gestirnir náðu ekki að nýta sér liðsmuninn vel í seinni hálfleiknum. Lengi vel var Newcastle sterkari aðilinn og hættulegri þrátt fyrir að vera tíu gegn ellefu. Man Utd náði ekki að hóta mikið og í lokin kom svo sigurmarkið. Það var Daninn William Osula sem gerði það fyrir Newcastle með frábæru skoti.
Þetta er fyrsta tap Carrick frá því hann tók við Man Utd en liðið er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með jafnmörg stig og Aston Villa. Newcastle situr í tólfta sætinu.
Athugasemdir

