Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 22:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Orri Steinn í bikarúrslitin
Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Real Sociedad 1 - 0 Athletic
1-0 Mikel Oyarzabal ('87 , víti)

Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður þegar Real Sociedad tryggði sér sæti í úrslitaleik spænska bikarsins í kvöld.

Sociedad mætti Athletic Bilbao en Orri og félagar unnu fyrri leikinn 1-0. Þeir voru því í góðum málum fyrir leikinn á sínum heimavelli.

Sociedad leysti verkefnið í kvöld mjög fagmannlega og gáfu engin færi á sér. Þeir skoruðu svo eitt mark úr vítaspyrnu í lokin til að gulltryggja sigurinn í einvíginu.

Orri og félagar hans munu mæta Atletico Madrid í úrslitaleiknum.

Það var svo einn leikur í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Rayo Vallecano vann sannfærandi sigur á botnliði Real Oviedo. Rayo er búið að koma sér sex stigum frá fallsvæðinu núna.

Rayo Vallecano 3 - 0 Oviedo
1-0 Jorge De Frutos Sebastian ('44 )
2-0 Jorge De Frutos Sebastian ('50 , víti)
3-0 Alvaro Garcia ('62 )
Athugasemdir
banner