Heimild: X/kristjanoli
Sóknarmaðurinn tvítugi Markús Páll Ellertsson er á leið í ÍA frá ítalska félaginu Triestina en þetta fullyrðir Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni á X samfélagsmiðlinum.
Markús Páll er uppalinn hjá Fram en bróðir hans er landsliðsmaðurinn Mikael Egill.
Markús Páll er uppalinn hjá Fram en bróðir hans er landsliðsmaðurinn Mikael Egill.
Markús Páll lék sína fyrstu leiki í Bestu deildinni með Fram tímabilið 2024. Hann spilaði þá sjö leiki í deildinni og skoraði eitt mark, sem kom í 7-1 tapi gegn KR á Meistaravöllum.
Hann hefur komið við sögu í fjórum leikjum í ítölsku C-deildinni á tímabilinu en þó aðeins samtals spilað 26 mínútur samkvæmt Transfermarkt.
Skagamenn eru stórhuga fyrir næsta tímabil en þeir hafa fengið Gísla Eyjólfsson frá Halmstad, Guðmund Þórarinsson frá Noah, Böðvar Böðvarsson frá FH og Rafael Mána Þrastarson frá Fjölni.
Athugasemdir


