Grískir lögreglumenn hafa kallað eftir því að Harry Maguire verði settur í leikbann af ensku úrvalsdeildinni eftir að enski miðvörðurinn var dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Grikklandi í gær.
Maguire var dæmdur fyrir líkamsárás, veita mótspyrnu við handtöku og múta lögreglumönnum þegar hann var í fríi í Grikklandi árið 2020.
Ioannis Paradissis, lögmaður lögreglumannanna sem héldu því fram að þeir hefðu særst við handtöku Maguire, gagnrýndi leikmanninn harkalega fyrir að biðjast ekki afsökunar og krafðist þess að hann fengi refsingu frá enska sambandinu.

„Í réttarhöldunum voru lögreglumennirnir, sem eru fórnarlömb í málinu, mættir í þeirri von að ákærði bæðist að minnsta kosti afsökunar – sem væri einfaldur virðingarvottur gagnvart einstaklingum sem voru einfaldlega að gegna lögmætri skyldu sinni," segir í yfirlýsingu frá Paradissis.
„Engin slík afsökunarbeiðni var boðin, sem segir mikið um persónuleika hans. Það verður að undirstrika að það er algerlega óásættanlegt að lögreglumenn, við lögmæta störf sín, verði fyrir líkamstjóni af hendi almennings, jafnvel þótt dómstóllinn flokki slíkan skaða sem „léttvægt líkamstjón“.
„Í ljósi þessa er skorað á lögbær íþróttasamtök og knattspyrnuyfirvöld að skoða þetta mál tafarlaust og beita þeim refsingum sem réttlætið krefst."
„Það er ósamrýmanlegt gildum íþrótta og þeirri fyrirmyndarstöðu sem afreksíþróttamenn eiga að tileinka sér að einstaklingur með sakavottorð vegna ofbeldis skuli halda áfram að birtast sem leikmaður í ensku úrvalsdeildinni og sem opinber persóna sem ungir aðdáendur um allan heim líta upp til.“
Athugasemdir