Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 05. mars 2026 08:40
Elvar Geir Magnússon
Pedro: Steig dans því þetta var sérstakt kvöld fyrir mig
Mynd: EPA
Joao Pedro átti heimsklassa frammistöðu fyrir Chelsea í gær þegar hann skoraði þrennu í 4-1 sigri gegn Aston Villa. Brasilíski sóknarmaðurinn er nú kominn með 17 mörk í öllum keppnum.

Sigurinn var feikilega mikilvægur fyrir Chelsea sem komst upp í fimmta sæti, sæti sem mun að öllum líkindum gefa Meistaradeildarsæti í lokin.

„Hann er toppleikmaður og sjálfstraustið eykst sífellt," segir Liam Rosenior, stjóri Chelsea.

„Markið hans með vinstri var úr efstu skúffu en ég var líka í skýjunum með mörkin tvö sem hann skoraði af stuttu færi. Hann var á réttum stað á réttum tíma, eitthvað sem við höfum unnið mikið með honum í. Hann náði þrennu og þetta var framúrskarandi liðsframmistaða."

Þrennan hjá Pedro er hans stærsta afrek fyrir Chelsea til þessa.

„Þetta var sérstakt kvöld fyrir mig. Ég var búinn að bíða eftir þessu. Þrennan kom á réttum tíma, eftir að við töpuðum gegn Arsenal. Við sýndum vilja og löngun og komum til baka. Þetta var sérstakt kvöld og því steig ég smá sambadans," sagði Pedro eftir leikinn.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner