Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvernig myndi Tottenham líta út í Championship?
Micky van de Ven.
Micky van de Ven.
Mynd: EPA
Xavi Simons og Dominic Solanke.
Xavi Simons og Dominic Solanke.
Mynd: EPA
Tottenham er í alvöru hættu á því að falla úr ensku úrvalsdeildinni. Spurs er búið að eiga skelfilegt tímabil og er bara fjórum stigum frá fallsvæðinu þegar tíu leikir eru eftir.

Það er alveg ljóst að ef Tottenham fellur, þá verða miklar mannabreytingar á milli tímabila. Það eru margir leikmenn innan hópsins á mjög háum launum og einhverjir sem myndu ekki sætta sig við að spila í næst efstu deild.

Vefmiðillinn GIVEMESPORT tók á dögunum saman mögulegt byrjunarlið Tottenham í Championship ef liðið fellur. Það væri svona:

Markvörður: Antonin Kinsky
Bakvörður: Djed Spence
Miðvörður: Luka Vuskovic
Miðvörður: Kota Takai
Bakvörður: Souza
Miðja: Conor Gallagher
Miðja: Archie Gray
Kantur: Mikey Moore
Fremstur á miðju: James Maddison
Kantur: Wilson Odobert
Sóknarmaður: Mathys Tel

Þarna er gert ráð fyrir því að á meðal þeirra sem yfirgefi félagið séu Guglielmo Vicario, Cristian Romero, Micky van de Ven, Pedro Porro, Lucas Bergvall, Xavi Simons, Dejan Kulusevski, Mohammed Kudus, Richarlison og Dominic Solanke.

Allir leikmennirnir sem eru í þessu mögulega byrjunarliði eru leikmenn Tottenham í dag en sumir þeirra eru að spila annars staðar á láni.
Athugasemdir
banner
banner