Tottenham tapaði þriðja leiknum í röð undir stjórn Igor Tudor í kvöld en liðið er án sigurs í fimm leikjum í röð í heildina.
Tottenham tapaði 3-1 gegn Crystal Palace en þannig var staðan í hálfleik. Þá fékk Micky van de Ven rautt spjald og stuðningsmenn Tottenham fengu nóg og margir yfirgáfu völlinn í hálfleik. Tudor er strax undir mikilli pressu en hann er bjartsýnn þrátt fyrir brösuga byrjun.

„Ég skil stuðningsmennina, þeir vilja meira. Við viljum líka meira, rauða spjaldið breytti öllu," sagði Tudor.
„Þetta gæti hljómað furðulega, ég hef meiri trú eftir þennan leik en áður. Ég sá eitthvað, ég þarf að velja réttu strákana því báturinn er að fara í þá átt sem ég þarf að fara, þeir sem vilja mega vera áfram en aðrir mega fara. Þegar leikmenn koma aftur eftir meiðsli er ég viss um að við séum með gott lið og snúum aftur."
Athugasemdir