Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   fim 05. mars 2026 19:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Má ekki koma nálægt félaginu
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur tjáð Edu Gaspar, yfirmanni fótboltamála hjá félaginu, að hann megi ekki koma nálægt félaginu.

Tími Edu hjá félaginu er að líða undir lok aðeins átta mánuðum eftir að hann var ráðinn en félagið hefur meinað honum að mæta á æfingasvæðið og á City Ground, heimavöll liðsins. The Telegraph greinir frá þessu.

Samkvæmt heimildum Telegraph var Edu ekki á leik Forest gegn Man City í gær sem endaði með 2-2 jafntefli en það var þriðji leikurinn í röð sem hann missti af.

Þessi fyrrum yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal var ráðinn til félagsins í júlí en tíminn hans hjá Forest hefur verið ansi erfiður. Fjórir menn hafa stýrt liðinu og margir nýir leikmenn hafa ollið vonbrigðum en félagið hefur eytt um 200 milljónum punda í leikmannakaup.
Slapp
banner
banner