Sóknarmaðurinn Karim Adeyemi er að bíða með það að skrifa undir samning við Borussia Dortmund þar sem honum langar að fara í ensku úrvalsdeildina.
Adeyemi er 23 ára og er á radarnum hjá mörgum stórliðum. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.
Adeyemi er 23 ára og er á radarnum hjá mörgum stórliðum. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United.
Framtíð Adeyemi hefur verið talsvert til umræðu í Þýskalandi en hann er með fimm mörk og þrjár stoðsendingar í 22 leikjum í þýsku Bundesligunni.
Samkvæmt Bild er Dortmund mikið að reyna að sannfæra Adeyemi um að skrifa undir nýjan samning en það gengur illa.
Adeyemi er með samning við Dortmund út næsta tímabil en hann ætlar að taka stöðuna á næstu vikum og mánuðum og sjá hvað gerist.
Athugasemdir



