Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Schar upplifði sína hræðilegustu daga
Fabian Schar.
Fabian Schar.
Mynd: EPA
Fabian Schar, varnarmaður Newcastle, segist hafa upplifað gífurlega erfiða daga að undanförnu. Hann hefur setið fastur í Miðausturlöndum en er núna kominn heim til Englands.

Schar hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu en í janúar fór hann til Miðausturlanda í endurhæfingu. Schar hefur ekki opinberað nákvæmlega hvar hann var en líklega var hann í Dúbaí sem er vinsæll staður fyrir fótboltamenn í meiðslum.

Það eru mikil átök núna í Miðausturlöndum eftir að Bandaríkin og Ísrael byrjuðu að varpa sprengjum í Íran.

Schar er mættur aftur til Newcastle núna eftir mjög erfiða daga. „Ég hef upplifað nokkra af mínum hræðilegustu dögum, þar sem ég hef því miður orðið vitni að því af eigin raun hvað er að gerast í Miðausturlöndum," skrifar Schar á Instagram.

„Ég er glaður að ég komst öruggur heim. En það sem við upplifðum þar, og það sem er að gerast núna, er skelfilegt. Ég vona að hjálpin komist til allra þeirra sem þurfa á henni að halda."


Athugasemdir
banner
banner