Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 22:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stjóri Brighton skaut á Arsenal - „Næsta spurning"
Fabian Hurzeler.
Fabian Hurzeler.
Mynd: EPA
„Það var aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í kvöld," sagði Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, eftir 0-1 tap gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Arsenal náði að harka út sigurinn og er Lundúnaliðið í frábærum málum á toppi deildarinnar.

„Ég verð aldrei stjóri sem mun reyna að vinna leiki svona. Enska úrvalsdeildin þarf skýrari reglur fyrir það þegar verið er að tefja leikinn."

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var spurður út í þessi ummæli Hurzeler og sagði þá einfaldlega:

„Næsta spurning, takk."
Athugasemdir
banner