Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
   fim 05. mars 2026 20:30
Snæbjört Pálsdóttir
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: EPA

Ísland mætir Evrópumeisturum Englands á City Ground vellinum í Nottingham, heimavelli Nottingham Forest, klukkan 12:30 á laugardaginn. Að því tilefni fengum við Sædísi Rún Heiðarsdóttur til að ræða um leikinn ásamt því að gera upp 3-0 tapleikinn gegn Heimsmeisturum Spánar.

„Blendnar tilfinningar, auðvitað endum á að tapa 3-0 en mér fannst við verjast vel og það er klárlega eitthvað sem við getum tekið með okkur. Þetta er náttúrlega svakaleg gott fótboltalið og fannst við sýna að þegar við erum þéttar og erum allar á þá er lítið sem kemst í gegnum okkur.“

„Fyrst og fremst kannski varnaleikurinn, mér fannst við verjast virkilega vel og það er klárlega eitthvað sem við getum byggt á og þurfum að byggja á. 


Fyrsta mark Spánar var verulega umdeilt en Albanski dómarinn ákvað að stöðva ekki leikinn þegar Sveindís Jane fékk þungt höfuðhögg. Hvernig lítur þetta við leikmönnum í hópnum?

„Við sáum þetta á vídjófundi og okkur finnst auðvitað að hún eigi að stoppa leikinn og ég held samkvæmt reglubókinni þá eigi hún að gera það en við eigum hins vegar að halda áfram þar til hún er búin að flauta.“

Stelpurnar eiga strax annan hörkuleik gegn Evrópumeisturum Englands, hvernig horfir hún á það verkefni?

„Ég er virkilega spennt og virkilega skemmtilegt að fá svona tvo sterka andstæðinga í röð og geta mátað sig við þá. Þetta eru auðvitað leikir sem þú vilt spila og ég held að við séum bara virkilega gíraðar.“

Það er vel valin kona í hverri stöðu hjá Englandi og líklegt að Sædís þurfi að hafa gætur á stórstjörnum úr ensku deildinni, líkt og Lauren James og Beth Mead er hún eitthvað að pæla í því hverjum hún mætir inn á vellinum?

„Nei voða lítið, ég held að það myndi ekki gera neinum gott. Þannig maður reynir bara að spila sinn leik og ekkert pæla neitt í andstæðingunum.

Er hún eitthvað byrjuð að hugsa um næsta skref á sínum ferli?

„Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli ég get ekkert logið um það og auðvitað er það stefnan en hvenær það kemur verður bara að koma í ljós og ég geri mitt á meðan ég er í Noregi.“

https://youtu.be/btvQ0P4HPc4


Slapp
banner