Gareth Bale gekk í raðir Real Madrid sumarið 2013 frá Tottenham eftir að hafa verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester United hafði einnig áhuga á Bale, en hann dreymdi um að fara til Spánar.
Bale segir að United hafði lagt fram hærra tilboð, en hann valdi Real Madrid. Bale var keyptur á 85 milljónir punda sem var heimsmetsupphæð.
Bale segir að United hafði lagt fram hærra tilboð, en hann valdi Real Madrid. Bale var keyptur á 85 milljónir punda sem var heimsmetsupphæð.
David Moyes var tekinn við Man Utd af Sir Alex Ferguson og vildi fá Bale á Old Trafford. Nú 13 árum síðar útskýrir Bale, í viðtali við Stick to Football af hverju hann valdi Real.
„United og Madrid voru liðin tvö sem höfðu áhuga. United bauð í raun meira en Madrid," segir Bale sem segist aldrei hafa ætlað að semja við United.
„Ég talaði við David Moyes, ekki Ed Woodward, en kannski gerði umboðsmaður minn það. Hjartað vildi fara til Madrid. Ég var með eitthvað við Daniel Levy, eins konar heiðursmannasamkomulag, hann vildi ekki selja mig til keppinauts."
„Ef við myndum ekki ná Meistaradeildarsæti, þá gæti ég mögulega farið til Ítalíu, Spánar eða hvað sem er, og við komumst ekki í Meistaradeildina. Ég gat þess vegna farið. Það var heiðursmannasamkomulag en Levy gerði þetta ekki auðvelt."
„Ég fór ekki í viðræður við United um laun. Tilboðið til Tottenham var hærra, en ég fór ekki í viðræður," sagði Bale.
Bale skoraði 106 mörk í 258 leikjum með Real. Hann vann Meistaradeildina fimm sinnum og spænsku deildina þrisvar sinnum.
Athugasemdir



