Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fim 05. mars 2026 09:47
Elvar Geir Magnússon
Framherji Arsenal og Englands orðin Barbie dúkka
PEI
Chloe Kelly með Barbie dúkkuna sína.
Chloe Kelly með Barbie dúkkuna sína.
Mynd: Mattel
Enska landsliðskonan Chloe Kelly sem spilar fyrir Arsenal er hæstánægð með þann heiður að Barbie dúkka hafi verið gerð eftir sér.

„Að vera Barbie fyrirmynd er sérstök tilfinning. Að eiga eigin dúkku, ég er mjög stolt af því. Þetta er eitthvað sem maður bjóst ekki við að gæti gerst," segir Kelly.

Kelly er 28 ára framherji sem á tvo Evrópumeistaratitla með Englandi og vann Meistaradeildina með Arsenal.

Hún skoraði sigumark í framlengingu á Wembley sem tryggði ljónynjunum sigur á Þýskalandi í úrslitaleiknum 2022 og skoraði sigurmarkið í vítakeppni gegn Spáni í úrslitaleiknum gegn Spáni í Sviss í fyrra.

Barbie heiðrar konur sem skara framúr í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna og hefur líka látið gera dúkkur eftir tennisstjörnunni Serenu Williams og indversku krikketkonunni Smriti Mandhana.


Athugasemdir
banner