Stuðningsmenn tyrkneska liðsins Galatasaray mega ekki mæta á útileikinn gegn Liverpool á Anfield seinna í þessum mánuði eftir ólæti á leik gegn Juventus.
Hlutum var kastað á völlinn og kveikt á flugeldum á leiknum í Tórínó þann 25. febrúar.
Hlutum var kastað á völlinn og kveikt á flugeldum á leiknum í Tórínó þann 25. febrúar.
Þrátt fyrir 3-2 tap þá komst Galatasaray áfram 7-5 samanlagt og mætir Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Fyrri leikurinn verður í Istanbúl næsta þriðjudag og sá seinni á Anfield 18. mars. Galatasaray má ekki selja miða á útileikinn og þá fékk félagið 40 þúsund evra sekt frá UEFA.
Athugasemdir



