Það var mikil dramatík þegar William Osula skoraði sigurmark Newcastle gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Newcastle lék tíu gegn ellefu allan seinni hálfleikinn en náði að tryggja sér sigurinn í uppbótartíma.
Fyrir tólf árum síðan vann Osula, þá ellefu ára gamall, hæfileikakeppni í fótboltaskóla Manchester United. Félagið birti þá mynd af honum á samfélagsmiðlum þar sem hann tók á móti verðlaunum frá Bryan Robson og Gary Pallister.
Osula er fæddur í Kaupmannahöfn en hann gekk í raðir Sheffield United 2018. Hann hefur mest verið í hlutverki varamanns síðan hann kom til Newcastle sumarið 2024.
Markið hans í gær var hans þriðja í 30 úrvalsdeildarleikjum fyrir Newcastle en 29 af þeim leikjum hefur hann komið af bekknum.

Clock ticking down.
— Newcastle United (@NUFC) March 5, 2026
Scores level.
Defenders to beat.
Step forward, Will Osula ???????????? pic.twitter.com/IkAU1DCxp6
2014: William Osula wins Man Utd’s Soccer School World Skills Final
— Premier League (@premierleague) March 4, 2026
2026: William Osula scores the winner for Newcastle against Man Utd! pic.twitter.com/MaAQO5Otz0
Athugasemdir