„Mér líður bara mjög vel, mér fannst þetta vera mjög öflug frammistaða og mikilvægt að láta úrslit koma með öflugri frammistöðu, halda út leikinn, þó að við vorum komnir í þægilega stöðu þá tókum við ekki fótinn af bensíngjöfinni. Þó að við vorum orðnir tíu þá fannst mér það litlu máli skipta, þannig að ég er bara mjög sáttur með þennan leik og liðið, gott framhald á því. Við fórum yfir hlutina í æfingaferðinni og þar urðu menn sammála um ákveðna hluti og það er oft þannig það er auðveldara að tala um það en að framkoma það, en mér fannst menn vera virkilega klárir í slaginn og klárir í þennan leik. Öðruvísi vinnum við ekki Stjörnuliðið" sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR eftir 0-4 sigur gegn Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikarsins í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 4 KR
Það er tæpur mánuður í mót, hvernig líst Óskari á liðið.
„Ég held að við séum í þokkalegu standi, við þurfum að halda áfram að vinna í okkar málum, verða betri í öllum þáttum leiksins og verða betri í að nýta allar þessar stöður sem við fáum, vera enn þá meira kveikt á okkur þegar við erum að verjast, auðvitað skiljum við svæði fyrir aftan okkur þegar við stöndum frekar hátt, við þurfum að vera enn þá betri að verja það svæði sem er fyrir aftan okkur, mér finnst við eiga fullt inni en það sem maður var mest ánægðastur með er hugarfarið, það er á góðum stað".
Það vantar nokkra leikmenn Akoto, Orri, Galdur, Hjalti og Luke, hvað er staðan á þeim?
„Staðan á þeim er að Hjalti er sennilega frá í 8 vikur, það tognaði liðband í æfingarleik úti á Tenerife. Michael (Akoto), Luke og Galdur þeir geta mögulega verið klárir í næstu viku, þannig að standið hjá liðinu er ljómandi gott, það er töluvert betra en hvernig það var í fyrra þegar við horfum á meiðslalistann, þá er þetta svona allt meira viðráðanleg meiðsli en heldur þau voru þá og það fór illa með okkur í fyrra, hvað okkur gekk illa að halda mönnum heilum, við erum í góðum málum held ég."
Þrátt fyrir meiðslin, ertu þá ánægður með breiddina?
„Já ég er auðvitað ánægður með það, það eru menn að koma þarna inn, ungu mennirnir Alexander Rafn og Siggi Breki voru frábærir, Krummi (Hrafn Tómasson) er að koma gríðarlega sterkur inn, það er auðvitað það fína, þetta eru KRingar, ungir þó að Krummi sé bara 23 á þessu ári, þá er hann ekki með mikla reynslu í efstu deild og það er frábært að sjá hann stíga upp og vaxa. Við erum með góða breidd og góðan og öflugan hóp, svo þurfum við bara að sjá til þess að við mætum alltaf með sama hugarfar og við mættum í dag."
Talandi um Sigurð Breka og Alexander Rafn, finnst þér þeir hafa stigið upp?
„Já, þeir eru búnir að stíga gríðarlega upp, það eru forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn og auðvitað er það þannig að þegar þú ert svona ungur þá geturðu tekið ansi stór skref á stuttum tíma, mér finnst þeir báðir hafa gert það. Siggi Breki hefur spilað kannski eilítið meira á þessu undirbúningstímabili og verið frábær, svo hefur Alexander líka staðið sig gríðarlega vel og þessir gæjar eru bara lykilmenn í hópnum. Alexander fer nú væntanlega samt sennilega til Norsjaelland í byrjun Júlí, það verður missir á honum en fyrst og fremst forréttindi að fá að vera í kringum þessa gæja og þjálfa þá."
Líka svo Amin Cosic, er hann búin að stíga upp?
„Já Amin er búin að stíga gríðarlega upp í vetur, hugarfarið, ekki það að það hafi verið lélegt, en hann hefur náð upp stöðugleika á æfingum, hann er farinn að vera öflugur á báðum megin vallarins, hvort sem það er varnar eða sóknarlega og þegar hann er í gír eins og í dag þá er bara mjög erfitt að eiga við hann."
Verður meiri hreyfing á leikmannamarkaðinum hjá KR.
„Nei, ég á ekki von á því, það er gamla klisjan sem ég hef oft sagt, leikmannahópurinn er hreyfanlegt afl og það getur alltaf eitthvað gerst en við erum sáttir með hópinn eins og hann er og erum ekki að leita af styrkingum, við erum að fá Stefán Árna og Guðmund Andra inn í þennan leik sem hafa verið mikið meiddir í vetur og Stefán Árni er að koma úr löngum og erfiðum meiðslum, þannig að nei við erum ekki að leita útum allt af leikmönnum."
Arnar Freyr byrjaði leikinn ekki Halldór, veður Arnar Freyr númer eitt í sumar?
„Ég myndi segja að Arnar Freyr sé númer eitt í dag, svo bara getur það breyst, Dóri er búinn að vera mjög flottur á æfingum, en Arnar er búin að vera virkilega öflugur í þessu leikjum og þarna ertu með samkeppni á milli tveggja góðra markmanna og það á enginn neitt í fótbolta, hvort sem það er markmannastaða eða center staða eða einhver önnur staða og menn þurfa bara á hverjum degi að vinna sér inn réttindi til þess að spila næsta leik og þannig er það bara."
Þú ert þá ekki búin að ákveða þig fyrir fyrsta leik í bestu?
„Nei, ég er ekki búin! að gera það, ég veit ekki hvernig byrjunarliðið verður á móti Keflavík 12. apríl en Arnar spilaði mjög vel í dag og þá er hann kannski með eilítið forskot en ég held að það sé frábært, ýta hvort öðrum, Dóri er búin að vera flottur í þeim leikjunum sem hann hefur spilað og það er raunverulega lúxusvandmál að vera með tvo góða markmenn þar sem erfitt er að velja á milli."























