Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
   lau 07. mars 2026 17:07
Snæbjört Pálsdóttir
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Eimskip
Alexandra Jóhannsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englands, 2-0, í öðrum leik þeirra í undankeppni heimsmeistaramótsins á The City Ground leikvanginum í Nottingham í dag.

,,Bara, við hefðum kannski getað gert aðeins meira með boltann þegar við fengum boltann og kannski smá ró og refsa þeim aðeins betur." Svaraði Alexandra Jóhannsdóttir aðspurð um hennar fyrstu tilfinningar eftir leikinn. 


Lestu um leikinn: England 2 -  0 Ísland

„Ég held að við hefðum getað verið aðeins aggressívar og leyfa þeim ekki að fá svona auðvelda krossa. Mér fannst þær kannski krossa full auðveldlega inn í teignn. Svo náttúrulega að klára mennina okkar þegar krossarnir koma."

Alexandra var að glíma við smávægileg meiðsli og tók ekki þátt í Spánarleiknum er hún búin að jafna sig á þeim?

„Já, þannig fínt að fá bara 30 mínútur í dag og koma aðeins til baka og svo bara á fullu núna." 

Ísland kemur úr þessu verkefni með ekkert skorað mark, eru það óraunhæfar kröfur að krefjast þess?

„Nei mér finnst það ekkert, við hefðum kannski getað þú veist, við fengum gott færi þarna þegar Sandra átti skalla rétt yfir, eða hvort hún hafi varið, þannig að við fáum tækifæri til þess að refsa þeim og við þurfum náttúrulega bara nýta þau. Við verjumst rosa mikið í flestum leikjum þannig að það er ekki nýtt fyrir okkur og okkur tekst oft að skora. Þannig bara já nýta þau færi sem við fáum. 

Hvað geta stelpurnar tekið jákvætt úr þessu verkefni og yfir í það næsta?

„Þolinmæði varnarlega, það tekur ógeðslega mikið á að vera ekkert með boltann og þurfa bara að verjast og halda fókus þar. Kannski taka það svolítið með okkur inn í næsta leik og nýta þau tækifæri sem við fáum."

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner