Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   lau 07. mars 2026 16:28
Snæbjört Pálsdóttir
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Eimskip
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Mynd: EPA

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englands, 2-0, í öðrum leik þeirra í undankeppni heimsmeistaramótsins á The City Ground leikvanginum í Nottingham í dag.

„Auðvitað vorum við að spila á móti frábæru liði og þetta var alveg strembið, Fyrri hálfleikurinn var svona meira ströggl heldur en seinni. Mér fannst við ná meira jafnvægi í leikinn í seinni hálfleik og gerðum það bara vel. Smá færsluvesen í fyrri hálfleik sem gerði okkur erfitt fyrir." Svaraði Steini, Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir leik. 


Lestu um leikinn: England 2 -  0 Ísland

María Catharina Ólafsdóttir Gros kom inn á í hálfleik í sínum öðrum landsleik, sá fyrri gegn Spáni. 

„Við þurftum að loka þessu svæði vinstra megin. Yfirtölunni sem þær náðu að mynda þar og hlaupunum þar, hornhlaupunum þar á bak við og við breyttum  aðeins þannig að María féll niður þegar við vorum án bolta og vorum að verjast. Hún féll niður eins og í fimm manna línu og mér fannst alveg takast ágætlega.

 „Það er gott að eiga unga leikmenn og spræka sem eru tilbúnir að taka hlutverk og hafa áhrif og María stóð sig bara vel heilt yfir."

Alexandra kom einnig inn á í leiknum en hún hafði verið að eiga við smávægilega meiðsli. 

„Það var vitað að í gær að hún yrði klár í dag en hún var ekki klár í að byrja, þannig við tókum þetta svona sem heppnaðist bara ágætlega, hún kom bara vel inn í þetta og stóð sig vel eins og vanalega." 

Ísland koma bæði stigalausar og markalausar úr þessum tveimur leikjum eru það óraunhæfar kröfur að setja mark gegn Heimsmeisturum og Evrópumeisturum?

„Ég held að orðið inn í spurningunni hafi nú sagt mikið til um það hvaða kröfur við getum gert. Við erum að spila á móti tveimur af þremur kannski sterkustu liðum í heimi og auðvitað dreymir manni alltaf um eitthvað, að ná  einhverju svona. Það tókst ekki í þessum tveimur leikjum en það er allt hægt í fótbolta, þannig að við þurfum að halda áfram að trúa á okkur og það sem við erum að gera. Við erum í erfiðum riðli en næsti leikur er gríðarlega mikilvægur á móti Úkraínu og það er það sem við förum að fókusa á núna."

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner