Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   lau 07. mars 2026 16:20
Snæbjört Pálsdóttir
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Eimskip
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englands, 2-0, í öðrum leik þeirra í undankeppni heimsmeistaramótsins á The City Ground leikvanginum í Nottingham í dag.

„Auðvitað svekkjandi, það er aldrei gaman að tapa. Mér fannst fyrri hálfleikur vera pínu bras af okkar hálfu, við vorum ekki að ná að telja og þær með algjöra yfirhönd. Mér fannst í seinni hálfleik við aðeins ná að breyta til og mér fannst við ná svona varnarlega ná svona stjórn á leiknum. Mér fannst þær ekki vera að skapa sér eins mikið og við vorum ekki eins opnar og leyfa þeim að fara í gegnum okkur. Þannig það er eitthvað jákvætt sem við getum tekið með okkur."


Lestu um leikinn: England 2 -  0 Ísland

„Þær eru lið sem spila mikið og taka hlaup niður í vasana bak við bakverðina. Við vorum búnar að ræða það svolítið fyrir leik hvernig við ætluðum að stoppa það og hverjir ættu að fylgja en svo var það ekki alveg að gnaga í leiknum eins og við vorum búin að tala um. Við vorum að detta með alltof marga leikmenn niður í línu og ekki telja það rétt. Þannig að í hálfleik þá förum við meira í fimm manna og erum þá í betri stöðum til að taka við hornhlaupum og getum haldið miðjumönnunum okkar í sínum stöðum sem munar gríðarlega miklu."

„Við fáum dauðafæri og hefðum getað skorað. Auðvitað langar okkur alltaf að skora og við erum með föstu leikatriðin sem er eitthvað sem við vitum að við erum sterkar í og vilkjum nýta okkur. Vorum næstum því búnar að gera það í dag. Kannski samt í eina skiptið sem við komumst þannig inn í teiginn. Viljum auðvitað gera það oftar en gerum okkur grein fyrir því að þegar við spilum gegn Evrópumeisturunum að þá erum við kannski ekki að fara vera þar oft og þá verðum við að nýta þessi færi sem við fáum. Því það hefði breytt leiknum að vissu leyti ef við hefðum náð inn marki."

„Erum að fá inn unga leikmenn og hungraða leikmenn sem er auðvitað gott, gaman að sjá leikmenn eins og Thelmu sem er  gríðarlega ung og farin út í atvinnumennsku og verður bara gaman að fylgjast með hvernig hún mun þróast. Ég er viss um að hún muni fá fleiri tækifæri, hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn í landsliðið. Vonandi er þetta tákn upp á framtíðina að við munum halda áfram að búa til frábæra leikmenn. 

„Alltaf gaman að fá inn hungraða leikmenn."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner