Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   fös 06. mars 2026 12:50
Snæbjört Pálsdóttir
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Eimskip
Diljá Ýr Zomers
Diljá Ýr Zomers
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland leikur gegn Evrópumeisturum Englands á morgun (laugardaginn 7. mars) á heimavelli Nottingham Forest, The City Ground, klukkan 12:30. Búist er við troðfullum velli en uppselt er á leikinn samkvæmt nýjustu upplýsingum. Við ræddum að því tilefni við landsliðskonuna Diljá Ýr Zomers,

Ísland tapaði 3-0 gegn Spáni á þriðjudaginn, hvernig horfir sá leikur við Diljá?

„Alltaf fúlt að tapa, held að öllum hafi liðið þannig en að sama leyti þá vitum við að Spánn er mjög gott fótboltalið og þetta var erfitt, þetta var aldrei að fara verða auðvelt. Alltaf gaman að spila á móti svona góðum fótboltaleikmönnum. En tilfinningin var, þetta var helvíti erfitt og þær gerðu bara mjög vel og mér fannst við líka bara gera nokkuð vel og verjast sem lið. Mjög skipulagðar, bara búnar að fara í gegnum þetta og bara hugsa um næsta leik.“


Fyrtsa mark Spánar var ansi umdeilt, hvernig horfir það við hópnum?

„Það er náttúrlega aldrei stopp fyrr en dómarinn flautar en auðvitað kannski bara eðlilegt að maður slökkvi kannski smá á sér þegar maður sér tvo leikmenn fara í harkalegt samstuð en já kannski bara svona 50/50 maður þarf alltaf að vera með kveikt á sér en að sama leyti eðlilegt að manni bregði þegar maður sér tvo leikmenn fara harkalega saman og liggja eftir. Ömurlegt að fá þetta mark á sig í fyrri hálfleik, hefði verið gott að fara inn í hálfleik með 0-0 og mér fannst við alveg eiga það skilið.“

„Gott að meta sig við bestu fótboltalið í heimi og ná að verjast vel á flestum köflum og kannski svona halda skipulagi í 90 mínútur, að verjast í 90 mínútur er ekkert auðvelt og að við náðum einhvern veginn að halda því sem við vildum gera út allan leikinn þótt að við höfðum fengið mark á okkur og er líka bara jákvætt. Ég held við þurfum að gera það sama bara á móti Englandi, það verður aðeins öðruvísi leikur en samt að mörgu leyti svipaður líka þannig bara áfram gakk.“

„Þær vilja spila á milli lína, kannski aðeins lengri sendingar hjá þeim heldur en á móti Spánverjunum og svo bara góðir fótboltaleikmenn en við erum líka mjög góðar í fótbolta og kunnum að verjast vel þannig bara sama markmið og á móti Spáni, að reyna að fá þrjú stig og verjast sem lið.“

Diljá kom inn á um miðjan seinni hálfleik gegn Spáni og stóð sig vel finnst henni hún hafa náð að sanna sig og gera tilkall til byrjunarliðssæti gegn Englandi?

„Bara hef ekki hugsað út í það, bara tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best. Fannst ég koma fínt inn á móti Spáni en bara ef það er sama hlutverk og ég fæ á móti Englandi þá bara tek ég því og geri það eins vel og ég get.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan



Slapp
banner