Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 06. mars 2026 14:06
Snæbjört Pálsdóttir
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið á annað ærið verkefni fyrir höndum þegar stelpurnar mæta nýkrýndum Evrópumeisturum Englands í hádeginu á morgun. Leikurinn verður spilaður á heimavelli Nottingham Forest, The City Ground og hefst klukkan 12:30 

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er ein af lykilmönnum í íslenska liðinu hvernig leggst þetta verkefni í hana?

„Bara vel, þetta verður líklega aðeins öðruvísi leikur en við spiluðum þarna á þriðjudaginn. Kannski lið sem ógnar aðeins öðruvísi en Spánverjarnir héldu rosalega vel í boltann og maður einhvern veginn komst ekki að boltanum. Ég held að Englendingarnir krossi aðeins fyrr og eru kannski að leita í aðeins öðruvísi svæði en heilt yfir bara mjög spennt.“


„Já það var kannski svolítið skrítið mark. Sveindís fer þarna í tæklingu og mér sýndist hún fá eitthvað á hausinn, þannig við kannski zone-um út aðeins en það á auðvitað ekki að gerast en já það bara gerðist og þær nýttu sér það. Kannski hefði leikurinn farið öðruvísi ef við hefðum náð 0-0 í hálfleik en getum ekki breytt því í dag. En eins og ég segi þá lögðum við allt í þann leik og hann er bara búinn og nú er bara fókus á England.“

Hvað geta þær tekið jákvætt úr leiknum gegn Spáni?

„Aðallega bara að okkur leið vel að verjast. Við vitum að við þurfum að verjast mikið í þessum leik líka en ég hugsa að það verði fleiri svæði. Við þurfum að halda í boltann ofarlega á vellinum. Við gerðum vel varnarlega oft á tíðum og þær áttu ekki auðvelt með að komast í gegnum okkur. Þannig það er svona aðalega það að nýta okkur þessa þolinmæði sem við höfðum.“

Eru að mæta öðruvísi liði en Spánverjum, heldur hún að hún muni hafa meiri tíma og kannski frelsi inn á miðjunni gegn Englandi?

„Já ég býst við því, við vorum með þrjár flatar á móti Spáni, kannski ekki staða sem ég er vön að spila en maður tekur því hlutverki sem manni er gefið. Þannig ég vona að við getum ýtt mér aðeins ofar í leiknum á morgun og ég er bara spennt fyrir því

„Ég held að það sé hver einasti leikmaður sem er í hópnum, ekki bara þessir 11 sem eru inn á. Þetta eru allt frábærir leikmenn ef ekki bestar í heimi og við þurfum að hafa gætur á þeim öllum. Ég veit að vinkona mín Georgia Stanway er heit þannig að við þurfum að passa hana.“


Slapp