Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   fös 06. mars 2026 15:14
Snæbjört Pálsdóttir
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
PEI
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Íslenska kvennalandsliðið á annað ærið verkefni fyrir höndum þegar stelpurnar mæta nýkrýndum Evrópumeisturum Englands í hádeginu á morgun. Leikurinn verður spilaður á heimavelli Nottingham Forest, The City Ground og hefst klukkan 12:30 

Fótbolti.net ræddi að því tilefni við Landsliðsfyrirliðann Glódísi Perlu Viggósdóttur. Hvernig leggst verkefnið í hana?

„Bara gríðarlega vel. Við vissum þegar við komum í þetta verkefni að við værum að fara í tvo gríðarlega erfiða útileiki og vonandi er bara margt sem við lærðum í fyrri leiknum sem við getum tekið með okkur inn í þennan leik, þótt ég held að hann verði aðeins öðruvísi en Spánn. Þannig að já ég vona bara að við getum tekið góða punkta úr Spánarleiknum með okkur inn í þennan leik og svo byggt ofan á það.“


„Spánn er bara þetta týpíska possession lið sem búa til rosalegar yfirtölur í svæðunumsem þær eru í og færa sig mjög vel með og i kringum boltann. Manni líður oft kannski svolítið eins og þær séu 14 inn á en ekki 11. Þannig þær eru gríðarlega góðar í því og náttúrlega hafa bara verið þjálfaðar í því síðan þær voru litlar.

„England kannski aðeins meira svona ekki direct fótbolti en kannski aðeins lengra á milli þeirra, lengri sendingar. Eru samt með gríðarlega góða einstaklinga sem geta skotið úr alls konar færum, þær krossa mikið, eru góðar í boxinu. Þær leita svolítið í svipuð svæði og Spánn en á aðeins öðruvísi hátt, þannig ég vona að við getum tekið lærdóminn með okkur úr Spánarleikinum.“

„Auðvitað erum við að pæla í hvaða eiginlega leikmennirnir eru með og hvað það er sem þær eru að spila upp á. Þær eru mikið að krossa og þær eru með góða leikmenn í boxinu sem að skila sér inn, klára hlaupin sín og þær eru duglegar.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að fara út á völlinn með kassann úti og vera klárar í baráttuna sem fylgir þessu líka.“

Glódís og stöllur hennar í vörninni þurfa að eiga við Alessiu Russo í boxinu á morgun eru þær með eitthvað leynivopn til þess?

„Þetta verður kannski bara svona sameiginlegt verkefni okkar varnarmannanna að hafa góð augu á henni og vita hvar hún er alltaf og ekki leyfa henni að týna sér. Hún er þannig leikmaður, hún vill spila á blind side og láta týna sér og koma svo með góð hlaup. Þannig að við þurfum bara að vera klárar hvar hún er alltaf. Samskipti skipta miklu máli og vera svolítið fysikal í hana.“

Stelpurnar spila fyrir fullum velli á morgun, hvað verður það síðasta sem Glódís mun segja við stelpurnar á morgun áður en þær ganga út á völlinn?


„Ég hugsa að það verði axlirnar niður, pressan er á þeim, við getum spilað okkar bolta. Okkur verður að líða vel í því sem við ætlum að gera. Við þurfum ekki að koma hingað og ætla að vera eitthvað tiki taka lið heldur ætlum við bara að vinna sem Ísland. Hvernig við höfum unnið svona leiki í fortíðinni hefur ekki verið á einhvern öðruvísi hátt en á þennan týpíska íslenska hátt. Þannig að við þurfum svolítið að vera bara klárar í það verkefni. Það er engin pressa á okkur og okkur langar að stríða þeim aðeins.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan


Athugasemdir
banner
banner