Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
Hildur Antons: Við þurfum að vera leiðinlegar
Emilía Kiær: Að við höfum ekki unnið stærra
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
   lau 07. mars 2026 17:30
Snæbjört Pálsdóttir
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Eimskip
María Catharina Ólafsdóttir Gros
María Catharina Ólafsdóttir Gros
Mynd: KSÍ

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englands, 2-0, í öðrum leik þeirra í undankeppni heimsmeistaramótsins á The City Ground leikvanginum í Nottingham í dag.

„Ég er alveg svekkt, auðvitað mjög glöð að fá að koma inn á og mjög gaman en mér fannst við alveg geta staðið okkur aðeins betur." Svaraði María Catharina Ólafsdóttir Gros,  um hennar fyrstu viðbrögð. María var að koma inn á í sínum öðrum landsleik gegn Evrópumeistrunum, sá fyrri gegn Heimsmeisturum Spánar,


Lestu um leikinn: England 2 -  0 Ísland

„Mér fannst það bara mjög öruggt, Mér leið bara vel með Guðrúnu þarna og voru góð samskipti. Stundum þarf bara að droppa niður. Mér fannst það virka vel, bara leiðinlegt að við fengum á okkur þetta mark því að mér fannst við alveg geta staðið í þeim."

„Persónlega bara mjög glöð að fá mínar fyrstu mínútur og mjög gaman að fá að spila með stelpunum."

„Sem lið þá getum við séð að við getum spilað á móti þeim þegar við róum okkur aðeins niður. Mér fannst við alveg geta spilað aðeins meira og hafa trú á  okkur. Það var ekki þannig að það væri eins og þær væru að valta yfir okkur, við stóðum alveg í þeim, þannig við getum tekið það með okkur."

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner
banner