Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   fös 06. mars 2026 13:29
Snæbjört Pálsdóttir
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Eimskip
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Íslenska kvennalandsliðið á annað risastórt verkefni fyrir höndum en stelpurnar mæta Evrópumeisturum Englands í hádegisleik á morgun, klukkan 12:30 á heimavelli Nottingham Forest, The City Ground. 

Hvernig ætlar Steini, Þorsteinn Halldórsson, þjálfari að setja leikinn upp?

„Við ætlum að reyna að vera aðeins ofar eða framar á vellinum Þannig að við svona fellum ekki alveg eins langt niður en svo bara kemur í ljós hvernig leikurinn þróast út frá því. Þær spila svona aðeins öðruvísi Englendingarnir heldur en Spánverjarnir og við þurfum að vera viðbúin ýmsum hlutum. Viðbúin krossana, hlaupunum, hornhlaupunum, búa til yfirtölu út á vængjunum og svoleiðis. Við þurfum að vera tilbúin að takast á við það.“


Hver er svona helsti munurinn á Englandi og Spáni?

„Það er svona líkamsburðir, þær eru svona líkamlega sterkari, fyrirgjafir hjá þeim eru mikið til oft á tíðum háir krossar, eru lengri krossar heldur en hjá kannski Spánverjum. Að sama skapi þá eru þær að sækja inn í svona svipuð svæði, gera það á aðeins öðruvísi hátt en svo er líka náttúrlega bara fyrir utan teig, þær skjóta mikið fyrir utan teig. Við fengum reyndar mark á okkur fyrir utan teig á móti Spáni en Englendingarnir gera mikið af því þegar þær eru komnar og nálgast teiginn, þá eru þær óhræddar við að slútta þar.“

„Við þurfum að halda áfram að vera þéttar varnarlega og allt það og við þurfum að gleyma okkur ekki í færslunum þegar þessir hlauparar koma inn í hálfsvæðin að við þurfum að vera tilbúin í það og við þurfum að vera með góð samskipti þar á milli þannig að við leysum það þegar þessir hlutir eru að gerast. Við gerðum það ágætlega á móti Spáni en kannski gleymdum okkur einu sinni, tvistvar en við þurfum allaveg að vera klár í það og við þurfum að hald því áfram. Svo þurfum við náttúrlega bara að þora að vera með boltann þegar við höfum tækifæri til o vilja vera með hann.“

„Það eru fullt af frábærum leikmönnum þarna. Þetta eru leikmenn sem eru náttúrlega að spila í góðum liðum í Evrópu flestar. Það er fullt af stórum nöfnum þarna, það er ekkert ein endilega sérstök. Auðvitað inn í boxi hefur Russo náttúrlega verið afgerandi í að skora fyrir þær og auðvitað þurfum við að gæta hennar vel."

„þær eru margar þarna sem eru bara góðir leikmenn sem við þurfum að kljást við og vera tilbúin til að leysa það varnarlega gegn þeim. Vonandi erum við búin að finna leiðir til að refsa þeim sóknarlega.“

Samkvæmt nýjustu upplýsingum er uppselt á leikinn á mun völlurinn því vera troðfullur, hvað er það síðasta sem Steini mun segja við stelpurnar okkar áður en þær ganga inn á völlinn?

„Bara njóta þess að spila fyrir framan 30.000 manns og ekki láta það hræða sig heldur bara taka orkuna frá áhorfendum og nota hana. Njóta mómentsins að vera að spila svona stóra leiki. Þetta á að hjálpa manni, þetta á að hvetja mann áfram.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan


Slapp
banner
banner
banner