Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
   mið 14. júní 2023 15:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Höddi verður í vörninni - „Taktík sem ég gríðarlega spenntur að prófa"
Sér mun á yngri leikmönnunum frá síðasta ári
Icelandair
Á landsliðsæfingu í vikunni.
Á landsliðsæfingu í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ræðir í viðtalinu einnig um tímabilið í Grikklandi.
Ræðir í viðtalinu einnig um tímabilið í Grikklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er vel stemmdur og liðið líka, spenntir, gaman að heyra að miðasalann hefur gengið vel - vonandi verður troðfullur völlur á móti Slóvakíu. Það er gaman að koma heim og reyna búa til þessa gryfju sem Laugardalsvöllur var. Blandan í hópnum er góð og maður sér mun á yngri leikmönnunum frá síðasta ári, þeir hafa stækkað, dafnað og gert góða hluti í sínum félagsliðum. Við erum komnir með rosalega gott lið og við þurfum að spila vel úr þeim spilum sem við höfum," sagði landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon við Fótbolta.net í dag.

Framundan eru leikir gegn Slóvakíu og Portúgal í undankeppni EM. Fyrri leikurinn er gegn Slóvakíu á laugardag á Laugardalsvelli.

Hörður þekkir ágætlega að spila fyrir framan fullan Laugardalsvöll að sumri til, skoraði á sínum tíma sigurmarkið gegn Króatíu í undankeppni HM.

„Þetta rifjast oft upp fyrir manni, þetta var gott mark og kannski smá heppni með því. Það ýtir og hjálpar okkur að vera með fullan völl. Við þurfum að einbeita okkur að Slóvakíu, þeir eru með gott lið, geta refsað okkur. Ef við spilum okkar leik og nýtum þeirra veikleika, þá ættum við að vera mjög góðir."

„Við höfum fundað og vitum hvað Slóvakíu getur, það eru sterkir leikmenn í hópnum þeirra og þeir þurftu að kalla Marek Hamsik til baka aftur. Við vitum hverjir veikleikar og styrkleikar þeirra eru."


Hópurinn kom fyrr saman þar sem deildirnar í Evrópu voru flestar búnar og náðu margir leikmenn að æfa vikuna áður en landsleikjaglugginn hófst formlega í þessari viku.

„Maður er alltaf tilbúinn í að forgangsraða öllu fyrir landsliðið, koma heim og spila fyrir þjóðina. Það er alltaf plús og gefur okkur svo mikið að koma heim og spila. Það er auðvelt að segja já við hringingu frá þjálfurum."

Hörður Björgvin hefur bæði leyst stöðu miðvarðar og vinstri bakvarðar í landsliðinu en þó meira verið í miðverði að undanförnu. Veit hann í hvaða hlutverki hann verður á laugardaginn?

„Svona næstum því, ég verð allavega í vörninni, ég get sagt þér það. Við höfum rætt taktík sem ég gríðarlega spenntur að prófa og það verður bara spennandi."

„Í liðinu mínu er ég að spila hafsent og mér líður rosalega vel þar, við breytum vörninni þar inni í leiknum í þriggja manna, fáum bakverðina mjög hátt og ég fæ meiri tíma til að fá boltann og rekja hann upp völlinn. Með því næ ég að búa til meira sóknarspil. Í landsliðinu er þetta aðeins öðruvísi, við þurfum að vera þéttir. Mér líður bara vel þar sem ég fæ tækifæri og reyni auðvitað að gera mitt besta þar. Maður þarf að grípa tækifærið þegar það kemur, vonandi grípur maður það aftur,"
sagði Hörður Björgvin.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan. Þar ræðir hann um félagsliðið sitt Panathinaikos og fyrsta tímabilið í Grikklandi.
Athugasemdir
banner