Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Deschamps um Ekitike: Gríðarlegt áfall fyrir hann og landsliðið
Mynd: EPA
Franska fótboltasambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að Hugo Ekitike meiddist illa í tapi Liverpool gegn PSG í Meistaradeildinni í gær.

Ekitike hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir Liverpool á tímabilinu en hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Frakka í september. Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin í gær og missir af HM.

Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, er sannfærður um að framherjinn muni finna sitt gamla form aftur.

„Því miður eru meiðslin það alvarleg að hann mun ekki geta klárað tímabilið með Liverpool né tekið þátt á HM," sagði Deschamps.

„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir hann og auðvitað franska landsliðið. Ég vil lýsa yfir fullum stuðningi mínum við hann."



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner