Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
banner
   mið 15. apríl 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Ekitike missir af HM
Mynd: EPA
RMC Sport segir ljóst að Hugo Ekitike, sóknarmaður Liverpool, muni missa af heimsmeistaramótinu sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada í sumar.

Ekitike meiddist illa þegar enginn leikmaður var í kringum hann í tapi Liverpool gegn PSG í Meistaradeildinni á Anfield í gær.

Í september lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir Frakkland og var búist við því að hann yrði í hópnum hjá Didier Deschamps í sumar.

Tímabilinu hjá honum er hinsvegar lokið hjá Ekitike og HM draumarnir horfnir ef marka má fréttamiðla. Hann er væntanlega með slitna hásin.

Ekitike hefur verið einn besti leikmaður Liverpool á erfiðu tímabili liðsins.
Slapp
banner
banner
banner