Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Caicedo að framlengja við Chelsea - Semur til 2033
Moises Caicedo er að skrifa undir nýjan samning
Moises Caicedo er að skrifa undir nýjan samning
Mynd: EPA
Ekvadorinn Moises Caicedo er við það að skrifa undir framlengingu á samningi sínum hjá heims- og Sambandsdeildarmeisturum Chelsea, en hann semur til 2033. Sky Sports og BBC greina frá þessu.

Caicedo er 24 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður sem var keyptur frá Brighton fyrir 115 milljónir punda árið 2023 og gerði þá átta ára samning.

Hann á því fimm ár eftir af samningi sínum en er nú við það að framlengja hann um tvö ár.

BBC og Sky segir að Caicedo hafi samþykkt samninginn og mun hann fá veglega launahækkun frá fyrri samningi.

Þessar fregnir koma aðeins mánuði eftir að fyrirliðinn Reece James framlengdi samning sinn við félagið til 2032.

Caicedo hefur spilað 42 leiki og skorað fimm mörk í öllum keppnum með Chelsea á leiktíðinni.
Slapp
banner
banner