Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   fim 16. apríl 2026 16:15
Brynjar Ingi Erluson
Landsliðsþjálfarinn biðst afsökunar - „Heimskuleg og óþörf ummæli“
Julian Nagelsmann, þjálfari Þjóðverja
Julian Nagelsmann, þjálfari Þjóðverja
Mynd: EPA
Julian Nagelsmann, þjálfari þýska landsliðsins, hefur beðið framherjann Deniz Undav afsökunar á ummælum sem hann lét falla í síðasta landsleikjaglugga.

Undav skoraði sigurmark Þjóðverja í 2-1 sigri á Gana í æfingaleik í landsleikjaverkefninu í mars.

Hann byrjaði á bekknum en kom inn á í hálfleik og gerði laglegt mark en Nagelsmann lét sérstök ummæli falla eftir leikinn.

„Ég er ekki viss um að hann hefði getað klárað þetta færi ef hann hefði verið hlaupandi í 70 mínútur. Þetta var langt hlaup og það hefði verið erfitt að framkvæma það svona ef við tökum mið af sumarhitanum og 42 gráðu hita,“ sagði Nagelsmann sem sá af sér eftir að hafa látið þessi ummæli falla.

Hann ræddi við MagentaTV í dag þar sem hann bað Undav afsökunar.

„Þetta voru óþarfa ummæli og bað ég Undav afsökunar daginn eftir. Sem betur fer tók hann vel í afsökunarbeiðnina og nú er allt í himnalagi á milli okkar. Þetta var ekki rétt og allt of harðort til að setja fram opinberlega. Ég baðst afsökunar og sagði við hann að þetta hafi verið heimskulegt af mér,“ sagði Nagelsmann enn fremur.

Nagelsmann sagði jafnframt að hlutverk Undav gæti breyst fyrir HM og hann eigi góðan möguleika að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu, og það sama eigi við aðra leikmenn í hópnum.

Þýskaland er með Ekvador, Fílabeinsströndinni og Curacao í riðli á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanda og Mexíkó í sumar.
Slapp
banner
banner