Josip Stanisic, varnarmaður Bayern, var ekki sáttur með Antonio Rudiger, varnarmann Real Madrid, eftir spennuþrunginn leik liðanna í Meistaradeildinni í gær.
Staðan var 3-2 fyrir Real Madrid í hálfleik en í Rudiger fór harkalega í Stanisic í aðdraganda þriðja marksins en það var ekkert dæmt.
„Hann sér mig koma og hann keyrir mig niður. Þú verður að spurja hann hvað gerðist þegar ég lá í jörinni. Að mínu mati er þessi hegðun algjörlega óásættanleg. Hann notaði eitt orð tvisvar, þú getur spurt hann. Hann er kannski nógu mikill maður til að játa það," sagði Stanisic.
„Ég vil ekki að það sé eitthvað slæmt á miilli okkar og ég tek þessu ekki persónulega. Þetta gerðist og fyrir mér er þessu lokið. En þessi hegðun er óásættanleg. Það skiptir ekki máli hvort menn séu að spila á móti hvor öðrum og þekkjast eða ekki."
???? The exact moment Rüdiger brought down Staniši? just before Mbappé’s goal. https://t.co/UR0SIsnS23 pic.twitter.com/33MdUp68DK
— Injury Time Doc ???? (@Blues_Alfred) April 15, 2026

