Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   fim 16. apríl 2026 11:47
Elvar Geir Magnússon
Segir FIFA að kenna hversu dýrt sé í lestina
Átta leikir á HM verða á Metlife leikvangnum, þar á meðal úrslitaleikurinn.
Átta leikir á HM verða á Metlife leikvangnum, þar á meðal úrslitaleikurinn.
Mynd: EPA
Mikie Sherrill, ríkisstjóri New Jersey, segir að það sé FIFA að kenna hversu dýrt sé í samgöngur á HM í sumar. Hann segir að FIFA ætti að niðurgreiða kostnaðinn.

Það tekur hálftíma að taka lest frá Penn lestarstöðinni í New York og á MetLife leikvanginn í New Jersey. Lest fram og til baka mun kosta rúmlega 100 dollara (12 þúsund krónur) sem er sjöfalt hærra en venjulega.

Engin afsláttarverð eru fyrirhuguð, þannig að börn og eldri borgarar verða einnig að greiða fullt fargjald. Átta leikir á HM verða á Metlife leikvangnum, þar á meðal úrslitaleikurinn.

Sherrill segir að skattgreiðendur verði ekki látnir standa straum af kostnaði við að flytja stuðningsmenn á leikvanga. Mikið hefur verið fjallað um hátt miðaverð á leiki mótsins og FIFA hagnast vel.

„FIFA greiðir núll dollara fyrir samgöngur á HM. Á meðan NJ TRANSIT situr uppi með 48 milljóna dollara reikning til að koma áhorfendum örugglega til og frá leikjum, þá græðir FIFA 11 milljarða dollara. Ég ætla ekki að láta almenninng í New Jersey greiða þann reikning í mörg ár fram í tímann. FIFA ætti að borga fyrir samgöngurnar," segir Sherill.
Slapp
banner
banner