Chelsea tókst ekki að stöðva leka úr herbúðum félagsins, en franski miðillinn Onze Mondial birti frétt í morgun um uppstillingu liðsins fyrir leik gegn PSG í kvöld.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem byrjunarlið Chelsea lekur í fjölmiðla, en það gerðist jafnframt fyrir fyrri viðureign liðanna. Liam Rosenior, stjóri Chelsea, var viss um að félagið kæmi til botns í lekamálinu fyrir leik kvöldsins.

Samkvæmt frétt Onze Mondial verður Wesley Fofana á bekknum en hinn tvítugi Jorrel Hato á að byrja í miðverði við hlið Trevoh Chalobah. Þá er Malo Gusto tæpur vegna veikinda.
Mögulegt byrjunarlið Chelsea gegn PSG samkvæmt fréttinni er í 4-2-3-1 leikkerfi: Sanchez í marki; Gusto, Chalobah, Hato og Cucurella í vörn; Lavia og Caicedo á miðju; Palmer, Fernandez og Neto fyrir aftan Pedro frammi. PSG leiðir einvígið 5-2.
Á síðasta ári komu upp álíka ásakanir hjá Manchester United þar sem núverandi leikmaður Chelsea, Alejandro Garnacho var bendlaður við að hafa lekið byrjunarliðinu. Forráðamenn United höfnuðu þó ásökununum.
Athugasemdir