Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 17:15
Kári Snorrason
Kemur Slot til varnar og gefur ekkert upp um næstu skref
Andy Robertson.
Andy Robertson.
Mynd: EPA
Arne Slot.
Arne Slot.
Mynd: EPA
„Hann hefur haldið ró sinni og reynt að finna lausnir. Við erum allir að hjálpa honum og róa í sömu átt. Pressan er meiri núna því úrslitin hafa ekki verið nægilega góð. Þegar þau vantar eykst gagnrýnin og það er okkar að takast á við það,“ sagði Andy Robertson, leikmaður Liverpool, á blaðamannafundi fyrr í dag er hann var spurður út í Arne Slot og slæmt gengi Liverpool.

Liverpool og Galatasary eigast við í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield annað kvöld. Tyrkirnir leiða með einu marki eftir fyrri leikinn.

„Við erum allir pirraðir yfir því að ná ekki sama stöðugleika og í fyrra, því það var það sem skildi okkur frá hinum liðunum. Það er erfitt að setja fingur á af hverju það hefur ekki gengið upp í ár.“

Robertson segir markmiðin skýr hjá félaginu. „Við verðum að komast í Meistaradeildina, þetta félag á alltaf að vera þar. Við dreymum um titla en verðum að einbeita okkur að næsta leik. Leikurinn á morgun er risastór og við verðum að gera allt til að vinna hann,“ bætti Robertson við.

Aðspurður um eigin framtíð vildi hann ekki ræða hana að svo stöddu: „Ég held að þetta sé ekki rétti tíminn til að ræða framtíð mína, 24 tímum fyrir stóran leik í Meistaradeildinni. Allur fókus er á þann leik og það verður tími síðar til að ræða hitt,“ sagði sá skoski að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner