Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham á Englandi, hefur enn mikla trú á að halda liðinu í efstu deild.
Tottenham var hársbreidd frá því að ná í fyrsta deildarsigur sinn á árinu er það mætti Brighton.
Mark Georginio Rutter seint í uppbótartíma kom í veg fyrir það og voru leikmenn Tottenham mjög svo niðurlútir í leikslok. De Zerbi sá samt margt jákvætt.
„Ég er miður mín yfir úrslitunum og fyrir hönd leikmanna því þeir eru að þjást of mikið. Við verðskulduðum sigurinn gegn frábæru liði Brighton. Ég verð að hrósa þeim fyrir leikstílinn, gæði leikmanna og bara allt. Við áttum samt ekki að fá þetta mark sem Rutter skoraði.“
„Ég er mjög jákvæður og stoltur af leikmönnunum. Þeir spiluðu frábæran leik með mikinn karakter og anda. Við verðum að vera sterkari en þessi úrslit og undirbúa okkur að næsta leik gegn Wolves, sem við ætlum að reyna að vinna. Ef við verðum jafn sterkir og við vorum í dag þá munum við veita þeim leik,“ sagði De Zerbi.
Hann var spurður út í það sem hann sagði við leikmenn eftir leikinn.
„Ég sagði þeim að vera sterkir, halda áfram að fylgja mér því ég vil hjálpa þeim. Þeir geta breytt hugarfarinu því það er það lang mikilvægasti parturinn. Það er auðvelt að vera neikvæður, en við verðum að einbeita okkur að þessari frammistöðu og finna leið til að komast aftur á sigurbraut. Ég er jákvæður því ég þekki leikmennina og gæði þeirra. Ég þekki þá sem manneskjur og hef trú á þeim.“
„Ég veit að við erum að berjast um að halda sæti okkar í úrvalsdeildinni. Þetta er erfitt augnablik, en við erum heppnir að geta starfað hjá þessu félagi með þessa ótrúlegu stuðningsmenn því andrúmsloftið var stórkostlegt. Það mætti halda að við værum að berjast um Meistaradeildarsæti en ekki fallbaráttu. Við munum berjast í hverjum í hverjum einasta leik og gera okkar besta. Þetta er langt í frá búið ef við gerum það.“
Sá hann eitthvað jákvætt?
„Ég sá ummerki. Ég sá blóð, karakter, kosti, skipulag með og án bolta. Allt sem þarf til að ná markmiðum okkar.“
Hvað þarf að bæta?
„Við þurfum að bæta margt. Mikilvægasta er að halda í þetta hugarfar. Ég sagði leikmönnunum að mæta á æfingu á mánudag með sama hugarfar. Ég vil ekki vinna með fólki sem er dapurt og neikvætt. Þeir verða að hafa trúa á mér. Ef ég er hér þá er það af því ég er viss um að við getum haldið sæti okkar í deildinni,“ sagði De Zerbi.


