Írski blaðamaðurinn Macdara Ferris er mættur til landsins og mun hann fylgjast með og flytja fréttir af leik Breiðabliks og Shamrock í forkeppni Meistaradeildarinnar. Ferris er eini írski blaðamaðurinn sem kom til Íslands en hinir eru allir (allavega flestir) að fylgjast með írska kvennalandsliðinu sem hefur fljótlega leik á HM í Ástralíu.
Hann starfar hjá extratime.com en skrifar einnig fyrir fleiri miðla í þessari ferð til Íslands. Fótbolti.net ræddi við hann í hádeginu í dag og spurði hann út í einvígi Breiðabliks og Shamrock.
Hann starfar hjá extratime.com en skrifar einnig fyrir fleiri miðla í þessari ferð til Íslands. Fótbolti.net ræddi við hann í hádeginu í dag og spurði hann út í einvígi Breiðabliks og Shamrock.
„Þetta er mjög erfiður leikur, í sögu Shamrock þá hefur liðið aldrei farið áfram í einvígi eftir að hafa tapað leik í einvíginu. Ef liðið á að fara áfram á morgun þá þarf liðið að skrifa söguna. Shamrock hefur spilað 105 leiki í Evrópu og það verður erfitt að þurfa að vinna leikinn á morgun eftir að hafa tapað fyrri leiknum í Dublin," sagði Ferris.
„Mér fannst Breiðablik spila mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Félagið seldi tvo af bestu leikmönnum sínum eftir að hafa unnið deildina, eru án eins síns besta leikmanns vegna krossbandsslita og fyrr í mánuðum seldi félagið markahæsta leikmanninn sinn til Belgíu. Fólk hélt kannski að Shamrock gæti virkilega stigið upp og unnið leikinn en mér fannst Breiðablik æðislegt í leiknum, liðið spilaði virkilega vel. Stjóri Shamrock sagði fyrir fyrri leikinn að Breiðablik gæti verið á sama getustigi og Flora Tallin sem sló Shamrock út úr Sambandsdeildarumspilinu fyrir tveimur árum. Fólk keypti það ekki og hélt að hann væri að tala andstæðinginn upp, en mér fannst hann hafa rétt fyrir sér."
„Shamrock var betra liðið í seinni hálfleik sem gefur þeim smá möguleika á bjartsýni á að liðið geti skrifað sig í sögubækurnar hjá félaginu á þriðjudagskvöld."
Ferris talar um að Shamrock hafi tapað sannfærandi á útivöllum þegar andstæðingurinn gerði það sem Breiðablik gerði í fyrri leiknum; sem var að pressa hátt.
Hann var hrifinn af markaskoraranum í fyrri leiknum en reyndi þó ekki að bera nafn Damirs Muminovic fram. „Boltinn fór mikið í gegnum hann og fyrirliðinn (Höskuldur Gunnlaugsson) var líka frábær, tók mikið af föstu leikatriðunum."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst. Hann talar um að það sé einungis hálfleikur í einvíginu og spáir því að Shamrock vinni leikinn á morgun 1-0. Í kjölfarið verði svo framlenging og mögulega vítaspyrnukeppni.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á þriðjudagskvöld.
Venue for Shamrock Rovers Champions League qualifier. Breidablik had massive kids tournament on Kipavogavoller pitch at weekend so some running repairs being made. Spoke with their manager and skipper earlier. Rovers fans will be in small open stand tomorrow & VAR is ready to go. pic.twitter.com/qYafTsgLxI
— Macdara Ferris (@macdarabueller) July 17, 2023
Athugasemdir























