Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 16:50
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðin í Evrópu: Jón Dagur og Kristall Máni beint í liðið hjá Brann - Svona lítur Forest út undir Pereira
Jón Dagur byrjar hjá Brann gegn Bologna
Jón Dagur byrjar hjá Brann gegn Bologna
Mynd: Brann
Kristall Máni er einnig í byrjunarliðinu
Kristall Máni er einnig í byrjunarliðinu
Mynd: Brann
Átta leikir í umspili í Evrópudeildinni og Sambandsdeild Evrópu hefjast klukkan 17:45 en Íslendingalið Brann tekur á móti Bologna og þá munu ensku bikarmeistararnir í Crystal Palace heimsækja Zrinjski Mostar til Bosníu.

Freyr Alexandersson og hans menn í Brann vonast til þess að leika eftir það sem Bodö/Glimt gerði við Inter í Meistaradeild Evrópu í gær, en norska liðið vann þar öflugan 3-1 sigur.

Ítölsku liðin hafa verið í vandræðum í Noregi síðustu ár, en leikurinn í kvöld er spilaður í Bergen.

Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason eru báðir í byrjunarliði Brann, en Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru frá vegna meiðsla.

Jón og Kristall eru báðir að þreyta frumraun sína með Brann í keppnisleik en þeir komu til félagsins í vetrarglugganum. Jón kom frá Herthu Berkín en Kristall frá SönderjyskE.

Byrjunarlið Brann gegn Bologna: Dyngeland; De Roeve, Pallesen, Boakye, Soltvedt; Ingason, Sorensen, Myhre; Mathisen, Holm, Thorsteinsson

Byrjunarlið Bologna: Skorupski; Zortea, Vitik, Lucumí, Miranda; Freuler, Moro, Ferguson; Bernardeschi, Castro, Cambiaghi

Nottingham Forest fer til Istanbúl og mætir þar Fenerbahce, en þetta verður frumraun Vitor Pereira með Forest. Hann tók við keflinu af Sean Dyche og er fjórði stjóri liðsins á tímabilinu.

Fenerbahce: Ederson; Semedo, Skriniar, Oosterwolde, Müldür; Talisca, Guendouzi, Kanté; Asensio, Cherif, Akturkoglu

Forest: Ortega; Aina, Milenkovic, Murillo, Williams; Anderson, Sangaré; Hutchinson, Gibbs-White, Hudson-Odoi; Igor Jesús.

Í Sambandsdeildinni er Gísli Gottskálk Þórðarson á bekknum hjá Lech Poznan sem heimsækir KuPS til Finnlands.

Crystal Palace spilar gegn Zrinjski Mostar í Bosníu en Oliver Glasner stillir upp gríðarlega sterku liði.

Byrjunarlið Palace: Henderson; Richards, Lacroix, Riad; Muñoz, Wharton, Kamada, Sosa; Johnson, Ismaila Sarr; Strand Larsen.
Athugasemdir
banner
banner