Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
banner
   fim 19. febrúar 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Edwards vildi meiri stuðning frá áhorfendum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rob Edwards þjálfari Wolves var mjög kátur eftir laglega endurkomu lærlinga hans gegn toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Botnlið Úlfanna lenti tveimur mörkum undir en náði að jafna leikinn á síðasta hálftímanum, svo lokatölur urðu 2-2.

Wolves er þó aðeins með 10 stig eftir 27 umferðir, 17 stigum frá öruggu sæti í deildinni.

„Ég vona bara að fólk sé smá raunsætt og átti sig á því hvaða liði við vorum að spila á móti. Við erum ekki að fara að valta bara yfir lið eins og Arsenal, sérstaklega ekki þegar við lendum undir snemma leiks. Ég hefði viljað aðeins meiri stuðning frá áhorfendum ef ég á að vera heiðarlegur," sagði Edwards eftir lokaflautið. Wolves hefur unnið 1 leik af 27 hingað til á deildartímabilinu.

„Ég er mjög ánægður með hvernig við kláruðum leikinn, þá var komin orka í áhorfendur og leikmenn og tilfinningin var frábær.

„Strákarnir voru að berjast af öllum kröftum en Arsenal er mjög gott lið, það er óraunhæft að ætla sér að keyra yfir svoleiðis lið. Þeir stjórnuðu leiknum í byrjun en við héldum haus og komumst aftur inn í leikinn áður en við tókum stjórn í síðari hálfleik.

„Ég skil að stuðningsmenn séu pirraðir og reiðir, þetta er búið að vera virkilega erfitt tímabil. Það breytir því ekki að við verðum að finna leið til að gefa þessum leikmönnum aukna orku á erfiðum stundum. Áhorfendur geta spilað mjög stóran þátt í því."

Athugasemdir
banner
banner