Rashford, Senesi, Delap, Sancho, Rogers, Richarlison, Goretzka og fleiri góðir koma við sögu í slúðri dagsins
   fim 19. febrúar 2026 22:48
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Haukar, KV og Selfoss með fullt hús
KV skoraði sjö
KV skoraði sjö
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Selfoss er með fullt hús eftir tvo leiki
Selfoss er með fullt hús eftir tvo leiki
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Haukar unnu KH
Haukar unnu KH
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Haukar, KV og Selfoss eru öll með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í B-deild Lengjubikarsins.

KV, sem leikur í A-riðli, vann 7-2 stórsigur á Augnabliki á KR-vellinum.

Vilhelm Bjarki Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir KV, en Oddur Ingi BJarnason, Aron Bjarki Jósepsson, Einar Þórðarson og Fusseini Issah komust einnig á blað.

KV er á toppnum með sex stig af sex mögulegum á meðan Augnablik er án stiga eftir einn leik.

Selfoss er með fullt hús í B-riðli eftir 4-1 sigur liðsins á Árbæ. Elvar Orri Sigurbjörnsson skoraði tvívegis fyrir Selfyssinga sem eru á toppnum með sex stig en Árbær án stiga eftir tvo leiki.

Haukar unnu annan leik sinn í C-riðli og eru á toppnum, en liðið vann KH, 3-1, á Hlíðarenda. Jón Gísli Stefánsson, Sigurður Hrannar Þorsteinsson og Ævar Daði Segatta komu Haukum í þriggja marka forystu áður en Sigfús Kjalar Árnason klóraði í bakkann á lokamínútunum.

Haukar eru með sex stig en KH með þrjú stig.

Úrslit og markaskorarar:

KV 7 - 2 Augnablik
1-0 Oddur Ingi Bjarnason ('1 )
2-0 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('7 )
3-0 Aron Bjarki Jósepsson ('18 )
4-0 Konráð Bjarnason ('34 )
4-1 Ingi Þór Kruger ('47 )
4-2 Kolviður Gísli Helgason ('54 )
5-2 Vilhelm Bjarki Viðarsson ('57 )
6-2 Einar Þórðarson ('86 )
7-2 Fusseini Issah ('90 )

Selfoss 4 - 1 Árbær
1-0 Elvar Orri Sigurbjörnsson ('34 )
2-0 Brynjar Bergsson ('50 )
2-1 Brynjar Óli Axelsson ('55 )
3-1 Elvar Orri Sigurbjörnsson ('63 )
4-1 Guðmundur Stefánsson ('86 )

KH 1 - 3 Haukar
0-1 Jón Gísli Stefánsson ('2 )
0-2 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('65 )
0-3 Ævar Daði Segatta ('78 )
1-3 Sigfús Kjalar Árnason ('82 )
Athugasemdir
banner
banner
banner