Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   fim 19. febrúar 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rebekka bjóst ekki við að koma inn
Kvenaboltinn
Mynd: Grótta
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
16 ára gömul Rebekka Sif Brynjarsdóttir kom inn af bekknum og spilaði síðasta hálftímann í 2-3 tapi FC Nordsjælland gegn Eintracht Frankfurt í gærkvöldi.

Liðin áttust við í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins og fer Frankfurt auðveldlega áfram í undanúrslit eftir stórsigur í fyrri leiknum í Þýskalandi.

   18.02.2026 22:30
Evrópubikar kvenna: 16 ára Rebekka kom inn gegn Frankfurt


Bráðefnileg Rebekka, sem er uppalin hjá Gróttu, gekk til liðs við Nordsjælland í fyrra. Þetta var hennar annar keppnisleikur fyrir meistaraflokk eftir að hafa fengið að spila síðasta korterið í fyrri leiknum gegn Frankfurt.

„Mér fannst bara geggjað að koma inná, ég var eiginlega ekki að búast við því. Það var líka geggjað að fá frumraunina í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins," sagði Rebekka.

„Það voru ekkert eðlilega margir að horfa sem var ótrúleg tilfinning. Mér fannst ég frekar fljót að komast inn í leikinn og var eiginlega ekkert það stressuð þegar ég kom inná - ég gerði bara mitt besta."

Rebekka hefur verið lykilleikmaður upp yngri landslið Íslands og er í æfingahópi U19 sem kemur saman í næsta mánuði, þrátt fyrir að vera fædd 2009.

Hún skoraði 7 mörk í 21 leik fyrir yngri landsliðin áður en hún tók stökkið upp í U19, þar sem hún er þegar búin að spila fimm leiki.

   17.02.2026 17:00
Æfingahópur U19: Sex úr Lengjudeildinni



Athugasemdir
banner
banner