Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
banner
   þri 20. janúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Berjast um að mæta Man City
David Beckham og Gary Neville eru í eigendahóp Salford City
David Beckham og Gary Neville eru í eigendahóp Salford City
Mynd: EPA
Síðasti leikurinn í 3. umferð enska bikarsins fer fram í kvöld er Salford City tekur á móti Swindon Town á Peninsula-leikvanginum í Salford sem er á stórborgarsvæði Manchester-borgar.

Salford City er félag í eigu fjárfestingahóps sem fyrrum United-mennirnir David Beckham og Gary Neville leiða.

Það er því möguleiki á að fá tilfinningaríkan grannaslag, en Salford eða Swindon munu mæta Manchester City í 4. umferð bikarsins.

Leikurinn hefst klukkan 19:45.

Leikur dagsins:
19:45 Salford City - Swindon Town


Athugasemdir
banner