Stuðningsmenn Palace kölluðu eftir því að Oliver Glasner yrði látinn fara frá félaginu eftir að það gerði 1-1 jafntefli við Zrinjski Mostar í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í Bosníu í gær.
Það mátti heyra í stuðningsmönnum Palace, sem gerðu sér langa ferð til Bosníu til að sja leikinn, kalla eftir viðbrögðum frá stjórninni.
Palace hefur aðeins unnið einn af síðustu fimmtán leikjum sínum í öllum keppnum.
Aðeins tæpt ár er síðan Glasner gerði Palace að bikarmeisturum á Wembley, en staðan er önnur núna og var stjórnin ekkert að hjálpa Austurríkismanninum með því að selja lykilmennina þá Eberechi Eze og Marc Guehi.
Glasner var svekktur eftir jafnteflið gegn Mostar en þakkaði engu að síður stuðningsmönnunum fyrir stuðninginn. Hann er greinilega ekki langrækinn og skilur vel að stuðningsmenn séu óánægðir með stöðuna.
„Takk kærlega fyrir ykkar stuðning. Algerlega magnaður stuðningur úr stúkunni og vona ég að þeir hafi notið ferðalagsins.“
„Núna er það Wolves og Mostar á heimavelli. Það er kominn tími til að ná í fleiri sigra, ekki bara þennan eina gegn Brighton. Það er alla vega markmiðið,“ sagði Glasner.
Athugasemdir




