Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   mið 21. janúar 2026 13:56
Elvar Geir Magnússon
Mateta tilkynnir Palace að hann vilji fara
Mateta er 28 ára.
Mateta er 28 ára.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta hefur tilkynnt Crystal Palace að hann vilji yfirgefa félagið.

Mateta á 18 mánuði eftir af núgildandi samningi og hefur ekki áhuga á að ræða framlengingu.

Ítalska félagið Juventus hefur reynt að fá hann í þessum mánuði en ekki gengið að verðmiða Palace sem er sagður vera um 40 milljónir punda.

Aston Villa hefur einnig sýnt honum áhuga.

Oliver Glasner stjóri Palace viðurkenndi í síðustu viku að félagið væri að hlusta á tilboð í Mateta.

Palace vann FA-bikarinn í maí en seldi Eberechi Eze til Arsenal síðasta sumar og svo fyrirliðann Marc Guehi til Manchester City í janúar. Glasner tilkynnti svo í síðustu viku að hann myndi hætta sem stjóri liðsins eftir yfirstandandi tímabil.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 25 17 5 3 49 17 +32 56
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 25 14 5 6 36 27 +9 47
4 Man Utd 25 12 8 5 46 36 +10 44
5 Chelsea 25 12 7 6 45 28 +17 43
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 25 11 4 10 38 34 +4 37
8 Everton 25 10 7 8 28 28 0 37
9 Sunderland 25 9 9 7 27 29 -2 36
10 Newcastle 25 9 7 9 35 35 0 34
11 Fulham 25 10 4 11 35 37 -2 34
12 Bournemouth 25 8 10 7 41 44 -3 34
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 25 7 8 10 35 35 0 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 25 7 8 10 34 43 -9 29
17 Nott. Forest 25 7 5 13 25 38 -13 26
18 West Ham 25 6 5 14 31 48 -17 23
19 Burnley 25 3 6 16 25 49 -24 15
20 Wolves 25 1 5 19 16 48 -32 8
Athugasemdir
banner