Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 21. febrúar 2023 11:30
Elvar Geir Magnússon
Hitti Rashford og spurði út í fagnið
Hugarfar!
Hugarfar!
Mynd: EPA
Marcus Rashford sóknarmaður Manchester United er einn heitasti leikmaður heimsfótboltans um þessar mundir. Hann raðar inn mörkum og fagnar með því að benda á höfuð sitt.

Rio Ferdinand fyrrum varnarmaður United heimsótti æfingasvæði United til að taka viðtal við Bruno Fernandes. Þar hitti hann Rashford og spjallaði við hann.

Ferdinand spurði Rashford út í fagnið.

„Meiningin á bak við fagnið er einfalt: Hugarfar!" segir Ferdinand í hlaðvarpsþætti sínum.

„Einfalt og flott. Þetta fagn hefur farið út um allt, fótboltamenn um allan heim eru að taka það. Allir krakkarnir sem skora mörk eru að fagna svona. Þetta eru áhrifin sem Rashford hefur."

„Það er frábært að sjá Marcus brosa. Það er öðruvísi ára yfir honum. Hann er að njóta sín og þetta var gott spjall. Andrúmsloftið á æfingasvæðinu er afskaplega gott."
Athugasemdir
banner
banner
banner