„Mér líður frábærlega. Mér fannst við mikið betri í dag og áttum þetta fyllilega skilið. Við hefðum getað skorað fleiri mörk. Víkingar eru alltaf erfiðir og hefðu getað refsað okkur. Mér líður frábærlega, þetta er úrslitaleikur og það er smá stress í byrjun. Ég hefði getað skorað allavegana tvisvar. Við héldum áfram og náðum markinu og svo kom smá rúsína í lokin.“ sagði Viðar Örn Kjartansson, leikmaður KA, eftir sigur á Víking Reykjavík í bikarúrslitunum í dag.
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 Víkingur R.
Viðar segist vera pirraður eftir að klúðra tveimur góðum færum í fyrri hálfleik en hann þakkar einnig stuðningsmannasveit Víkings fyrir leikinn sem sungu um Viðar í leiknum.
„Ég gerði það. Ég sparkaði í jörðina, ég fann það. Ég var svekktur í nokkrar mínútur en ég hætti bara að pæla í því. Ég þakka stuðningsmannasveit Víkings fyrir mótíveringuna í dag, þetta var geðveikt.“
Fyrsta mark KA er skráð á Ívar Örn en það er spurning hvort að Viðar hefði náð að snerta boltann þegar hann var að rúlla yfir línuna.
„Ég fann snertingu og það getur vel verið að ég var að ímynda mér það ég þarf að sjá þetta aftur. Ég tek þetta á mig þar til ég sé annað það er bara svoleiðis.“
Er einhver möguleiki að Viðar verði áfram í KA?
„Maður veit aldrei. Ég ætla bara að einbeita mér að seinustu 5 leikjunum. Það er alltaf möguleiki.“ sagði Viðar Örn að lokum.
Viðtalið í heild sinni við Viðar má sjá í spilaranum hér að ofan.