Grímsi áfram fjarri góðu gamni
Klukkan 18:00 tekur ÍA á móti KA í Akraneshöllinni. Leikurinn er liður í 3. umferð Bestu deildarinnar. ÍA er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina sína en KA er án stiga.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðabliki. Gabríel Snær Gunnarsson (2008) kemur inn í byrjunarliðið fyrir Guðmund Þórarinsson sem er fjarri góðu gamni eftir að hafa meiðst gegn Breiðabliki. Matthías Daði Gunnarsson og Aron Kristinn Zumbergs koma svo inn á bekkinn. Gabríel Snær er á leið til Elfsborg í sumar.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðabliki. Gabríel Snær Gunnarsson (2008) kemur inn í byrjunarliðið fyrir Guðmund Þórarinsson sem er fjarri góðu gamni eftir að hafa meiðst gegn Breiðabliki. Matthías Daði Gunnarsson og Aron Kristinn Zumbergs koma svo inn á bekkinn. Gabríel Snær er á leið til Elfsborg í sumar.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 0 KA
Hallgrímur Mar Steingrímsson er áfram fjarri góðu gamni hjá KA, missir af sínum öðrum leik vegna mjaðmameiðsla.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Víkingi. Kári Gautason kemur inn fyrir Birgi Baldvinsson sem meiddist í síðasta leik og Sveinn Margeir Hauksson byrjar í stað Samuel Kroon sem er ekki með í dag. Jóan Símun Edmundsson kemur inn í hópinn eftir meiðsli og gæti spilað sinn fyrsta leik á tímabilinu. Sigurður Nói Jóhannsson og Dagbjartur Búi Davíðsson koma einnig inn í hópinn hjá KA.
Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
9. Viktor Jónsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
15. Gabríel Snær Gunnarsson
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Kári Gautason
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson
14. Danijel Dejan Djuric
16. Jakob Héðinn Róbertsson
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 4 | +4 | 6 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Fram | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 4. Víkingur R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 5. Breiðablik | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 - 1 | +1 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 9. ÍA | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. ÍBV | 2 | 0 | 1 | 1 | 2 - 3 | -1 | 1 |
| 11. Keflavík | 2 | 0 | 0 | 2 | 3 - 6 | -3 | 0 |
| 12. KA | 2 | 0 | 0 | 2 | 2 - 5 | -3 | 0 |



