Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 18:34
Brynjar Ingi Erluson
Hafna því að taka upp myndbandstækni
Mynd: EFL
Félög í ensku B-deildinni (Championship) hafa hafnað tækifærinu á að innleiða myndbandstækni fyrir næsta tímabil.

Fulltrúar frá PGMO (Professional Game Match Officials) kynntu myndbandstæknina FVS (Football Video Suport) á ársþingi EFL-sambandsins í síðasta mánuði.

FVS er afbrigði af VAR sem krefst færri úrræða og veitir stjórum heimild til þess að biðja um tvær endurskoðanir í hverjum leik.

Þetta er tækni sem hefur verið í prófun síðustu tvö árin og er ætluð deildum sem þar sem færri myndavélar eru notaðar. Það er í raun ekki hefðbundið VAR, heldur er aðeins skjár á vellinum þar sem dómarar geta horft á endursýningu af atvikum.

Eins og áður kom fram fær hver stjóri tvær endurskoðanir í leik og jafnvel fleiri ef endurskoðunin reynist árangursrík.

Félögin höfðu hins vegar engan áhuga á að innleiða þessa tækni og höfðu verulegar áhyggjur af því hvernig stuðningsmenn myndu taka í það og kostnaðinn við að innleiða hana.

BBC segir að félögin hafi hafnað tækifærinu á að taka upp þessa tækni á næsta tímabili og í fyrirsjáanlegri framtíð. Þar kemur fram að það sé ólíklegt að umræðan verði tekin aftur upp á næsta ári.
Slapp
banner
banner